3. Menning – Avery Fisher Hall

Borgarrölt

Avery Fisher Hall, New York

Avery Fisher Hall

44 hásúlur umlykja sinfóníuhöllina Avery Fisher Hall, sem hefur verið margendurbyggð að innanverðu til að ná réttum hljómburði, er tókst loks árið 1976 eftir tíu ára strit.

Höllin tekur 2.742 manns í sæti. Hún er heimili New York Philharmonic, sem hefur vertíð september-maí. Í júlí-ágúst eru haldnir ódýrir Mozart-konsertar og í september kvikmyndahátið borgarinnar.

Leonard Bernstein, Arturo Toscanini og Leopold Stokowski hafa verið hljómsveitarstjórar NY Philharmonic, en nú stjórnar þar Zubin Mehta. Þegar við vorum þar síðast, var á dagskrá frumflutningur á konsert eftir Husa og flutningur á annarri sinfóníu Schuberts og öðrum píanókonsert Liszts. Mehta stjórnaði og einleikari á píanó var Andre Vatts.

Næstu skref

2. Menning – NY State Theater

Borgarrölt

N.Y. State Theater, New York

New York State Theater

Hitt óperuhúsið við torgið, New York State Theater, er heimili New York City Ballet og New York City Opera. Ballettinn ræður ríkjum  nóvember-febrúar og apríl-júlí, en óperan júlí-nóvember. Við framhlið hússins eru fjögur pör sjö hæða súlna og inni í anddyrinu eru fjórar hæðir til gyllta loftsins, allar með svölum. Höllin tekur 2.279 manns í sæti.

Þegar við vorum síðast í New York var Kristján Jóhannsson að koma þar fram í fyrsta sinn við mikinn orðstír gagnrýnenda. Það var í hlutverki Rodolfo í La Bohéme eftir Puccini. Önnur verk á skránni voru Madama Butterfly eftir sama höfund, Brúðkaup Figaros eftir Mozart, Perluveiðimennirnir og Carmen eftir Bizet, Norma eftir Bellini, Faust eftir Gounot og heimsfrumsýning á Líf og ævi Malmcolm X eftir Davis.

Næstu skref

Magnað hugsjónagengi

Punktar

Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir hefur einn tilgang í lífinu sem borgarfulltrúi Framsóknar. Vill, að Svanur Guðmundsson, eiginmaður hennar, fái að reisa gáma undir fátæklinga á vegum Reykjavíkurborgar. Kvartar yfir lélegum undirtektum annarra borgarfulltrúa, sem ekki eru eins efldir hugsjónum. Áður var upplýst um hugsjónatilgang hins fulltrúa Framsóknar, Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur. Hún vill hindra, að hinir vondu múslimar fái að reisa mosku á auðu svæði við enda Suðurlandsbrautar. Í Framsókn vantar ekki, að forustumenn hafi hugsjónir við hæfi. Enda hlutu þær stöllur töluvert fylgi borgarbúa í kosningunum í vor.

4. New York – hringsigling

Borgarrölt
Manhattan Bridge & Downtown, New York

Manhattan Bridge & Downtown, séð frá sjó

Circle Line

Fyrsta og skemmtilegasta skoðunarferðin í New York er jafnframt hin þægilegasta. Við förum út að 83. bryggju við vesturenda 43rd Street og tökum okkur far með bátnum, sem siglir umhverfis Manhattan. Þar komum við okkur fyrir í þægilegu útsýnissæti og sötrum uppáhaldsdrykkinn á meðan við sjáum borgina líða hjá. Þetta er allra bezta aðferðin til að átta sig á afstöðu einstakra skýjakljúfa og borgarhverfa án þess að þurfa að rekast um í mannþröng og borgarhita.

Midtown, New York 2

Midtown séð úr þyrlu

Bezt er að koma sér fyrir á bakborða, því að báturinn fer rangsælis umhverfis Manhattan. Ennfremur er skynsamlegt að velja sér gott skyggni til fararinnar, helzt að morgni dags, því að stórborgum fylgir oft mistur, sem spillir skyggninu. Ferðin tekur þrjár stundir.

Island Helicopter

Nýstárlegri og fljótvirkari aðferð til að átta sig á hlutföllum Manhattan er að fara í þyrluflug. Farið er frá mótum 34th Street og East River. Unnt er að velja mismunandi löng flug, allt frá sjö mínútum og USD 30. Hálftíma flug yfir eyjuna þvera og endilanga og suður að frelsisstyttunni kostaði USD 84. Um þessa ferð gildir eins og um hina fyrri, að gott skyggni skiptir mestu máli. Okkur er ekki kunnugt um, að slys hafi orðið í langri sögu þessa þyrluflugs.

Fyrst er það menningin

Næstu skref

3. New York – veitingahúsin

Borgarrölt
Oyster Bar, restaurant, New York

Oyster Bar á Grand Central Station, eitt skemmtilegasta veitingahúsið

Matur – veitingahús

Veitingahúsin eru eitt bezta dæmið um, að í New York mætast allar þjóðir heims. Af 10.000 matstöðum á Manhattan er aragrúi af erlendum uppruna. Þar er hægt að fara hringferð um hnöttinn án þess að gera annað en sækja veitingastofur.

Kannanir sýna, að New York búar fara út að borða þriðja hvern dag að meðaltali, enda þarf mikil viðskipti til að halda uppi 10.000 matstofum. Margir þeirra kunna vel að meta góðan mat, svo að mikið er af prýðilegum veitingastöðum í borginni, þótt líka sé töluvert af lélegum og ómögulegum.

Næstu skref

2. New York – mjúk og hörð

Borgarrölt
World Trade Center, New York 2

Bókarhöfundar eru hér á þaki World Trade Center, sem nú er ekki lengur til

Channel Gardens, New York

Channel Gardens

Manhattan er staðurinn, sem hefur allt. Ef eitthvað er til einhvers staðar í heiminum, er það líka til á Manhattan. Þar eru útibú frá öllum frægu verzlunum Evrópu. Þar eru 10.000 veitingahús frá nærri öllum löndum heims. Þar eru gefin út blöð og reknar útvarpsstöðvar á 50 tungumálum.

Daglega er eitthvað merkilegt að gerast í New York, Corazon Aquino að taka við verðlaunum á Pierre, Johnny Cash að árita bækur á 5th Avenue, Sarah Vaughan með afmælistónleika á Blue Note í Greenwich, Norðmenn að sigla víkingaskipi inn á South Street Seaport og Kristján Jóhannsson að syngja í La Boheme í ríkisleikhúsinu.

Manhattan hefur gengið í endurnýjun lífdaganna. Mörg hverfi, sem áður voru í niðurníðslu, hafa verið hresst við á síðustu árum, víðast að frumkvæði framúrstefnu-listamanna. Veitingahús, verzlanir og velmegun hafa fylgt eftir.

Fólk annað hvort elskar eða hatar New York. Hún er mjúk og hörð í senn, en fyrst og fremst er hún hröð og æst, jafnvel tryllt. Hún er kjörinn áningarstaður þeirra, sem líður vel, þar sem hlutirnir gerast, þar sem naflinn sjálfur er. Hún er andartakið sjálft.

Næstu skref

Tepokuð þjóðkirkja

Punktar

Íslenzka þjóðkirkjan tepokaðist á Kristsdegi. Afneitaði frelsaranum, sem velti borðum víxlaranna í musterinu. Lýsti yfir stríði gegn almenningi, sem stundar fóstureyðingar og ber ekki næga virðingu fyrir bófum alþingis og ríkisstjórnar. Er orðin sérstakur verndari kvótans og kvótagreifanna, sem fjármagna græðgi og ógeð stjórnmálanna. Hin bandaríska teboðshreyfing er upprisin hér og líkamnast í þjóðkirkjunni. Nú er predikuð sáttfýsi, friður og uppgjöf fyrir öllu því liði myrkrahöfðingjans. Víxlarar færa út kvíarnar og setja upp höfuðstöðvar Mammons á altari þjóðkirkna. Við vitum þó, inn í hvaða myrkragengi þjóðkirkjan ráfaði.

Kirkjan lýsir yfir stríði

Punktar

Ekki skil ég, á hvaða ferð þjóðkirkjan íslenzka var á Kristsdegi í Hörpu. Var að minnsta kosti ekki að velta um borðum víxlaranna í musterinu. Þvert á móti varaði hún almúgann við að trufla ríkisstjórnina við hennar góðu störf í okkar þágu. Svo var beðið fyrir kvótanum og kvótagreifunum, sem fjármagna yfirgang bófanna gegn fólkinu. Þetta var svo langt úti á hægra jaðri, að líkja má við stríðsyfirlýsingu þjóðkirkjunnar gegn almenningi. Svo var kallað í guð og þá birtist bara Haarde á tjaldinu og var enn að biðja guð um hjálp. Einhverjir aðrir en þjóðkirkjan munu verða til að velta um borðum víxlarana í musterinu.

Allt virðist eitrast

Punktar

Allt virðist eitrast, sem Ólafur Ragnar Grímsson snertir. Vinir hans í Kína, Rússlandi og ríkjum Arabíuskaga eru hvarvetna fyrirlitnir. Hvarvetna er hlegið að kenningum hans um heimsvægi norðurslóða með höfuðborg í Sankti Pétursborg. Líka að kenningum hans um, að krónan sé ekki meðsek í gjaldeyrishruni okkar. Ólafur Ragnar kemst ekki út úr þeim hnút ævisögunnar að hafa verið klappstýra hinnar geðbiluðu útrásar bankabófa. Þar botnfraus hann og er enn að lofsyngja útrásina og hina íslenzku fyrirmynd annarra þjóða. Þótt heimskulegt sé, gengur þetta vel ofaní þjóðrembda fábjána, sem elska að láta strjúka sér og klappa.

Vekja andúð á kristnum

Punktar

Það er ekki fréttastofa Ríkisútvarpsins, sem vekur upp „fordóma og andúð á kristnu fólki“. Þar eru fremur að verki hinn ofstækisfulli dómkirkjuprestur og hinn fyrrum stríðsglaði dómsmálaráðherra. Nátttröll dagsins standa fyrir bænum, sem stinga í stúf við siðferði fólks. Kaþólska kirkjan var til skamms tíma slíkt nátttröll, sem var notuð til að halda almenningi niðri. Á síðustu árum hefur hún hins vegar víða breytt stefnu og styður alþýðuna. Slíkt á ekki við um farísea Íslands. Þeir eru enn að biðja fyrir kvótagreifum og að gagnrýnendur láti ríkisstjórn bófaflokkanna í friði. Vekja auðvitað andúð á kristnu fólku.

Biðjast fyrir með bindi

Punktar

Heldur betur létu biskupinn og félagar fallerast á bænadegi hægra ofstækis. Þar var beðið fyrir harðari reglum gegn fóstureyðingum, en ekki fyrir konunum. Þar var beðið fyrir kvótanum og greifum hans, en ekki fyrir hinum, sem stolið er frá. Alls ekkert var minnst á hina smæstu, sem nú á að fara að stafla í gáma. Biskupinn yfir Íslandi tók þátt í þessu rugli án þess að gá að góðu jafnvægi bænarefna. Einnig falleraðist forseti Íslands, en það er svo algengt, að ekki tekur því að pirrast. Fyrir bragðið varð bænadagurinn að herhvöt öfgasinnaðra hægri farísea, sem fara í hvíta skyrtu og setja upp hálsbindi, er þeir hræsna.

10. Barcelona – Sagrada Família

Borgarrölt
Sagrada Familia, Barcelona

Sagrada Familia, Barcelona

Sagrada Família

Ef við beygjum inn þvergötuna við Casa Milá, komum við fljótlega að einkennistákni borgarinnar, umdeildri höfuðsmíði arkitektsins Gaudí. Það er kirkjan Temple Expiatori de la Sagrada Família.

Byrjað var að reisa hana fyrir rúmri öld, en hún er enn ekki fullsmíðuð, en turnarnir mörgu, með marglitum mósaíktoppum, rísa í óskipulegri reisn yfir görðunum í kring. Ekki er hægt að lýsa þessu furðuverki í texta. Það tekst betur með ljósmynd, en bezt er þó að koma á staðinn, standa undir berum himni í kirkjuskipinu og horfa upp til turna Gaudís.

Héðan má taka leigubíl og skreppa til Parc Güell. Það er skemmtigarður, sem er teiknaður af enn hinum sama Gaudí. Upphaflega átti þetta að vera hverfi 60 garðíbúða, en aldrei varð af því. Eftir stendur skemmtigarðurinn með Hans og Grétu piparkökuhúsum og skrautlegum hleðslum af ýmsu tagi, draumaheimur fyrir börn á öllum aldri.

Næstu skref

Fótaþurrka missir fóta

Punktar

Fyrst þýzka ríkið kaupir leynigögn um skattsvikara, ætti íslenzka ríkið að geta slíkt hið sama. Þjóðverjar eru nákvæmir um rétt og rangt og eru án efa ekki að fremja lögbrot með kaupunum. Hér á landi ríkir his vegar sérlega illskeyttur legalismi. Menn velta vöngum yfir, hvort virkilega sé rétt að kaupa gögn, sem gætu hugsanlega verið illa fengin. Að venju drukkna Íslendingar í vangaveltum legalisma. Svo illa villast menn, að skattrannsóknastjóri missir fóta. Bryndís Kristjánsdóttir telur Bjarna Benediktsson vera yfirmann skattrannsókna. Hefur vísað málinu til hans. Meira galin getur einföld skattrannsókn ekki orðið.

14. Toledo – Catedral gótica

Borgarrölt
Catedral gótico, Toledo

Catedral gótica, Toledo

Catedral gótica

Frá kastalanum förum við til dómkirkjunnar, upprunalega í gotneskum stíl franskættuðum frá 13. öld, en dálítið færð til byggingarstíla tveggja næstu alda. Vesturverkið og turninn eru í hreinum stíl gotneskum. Í turninum hangir 17 tonna klukka frá miðri 18. öld. Kirkjan er einkum þekkt fyrir höggmyndir og málverk, sem í henni eru. Einnig fyrir kórbekkina, sem eru vandlega útskornir. Rodrigo Alemán skar neðri hluta þeirra í lok 15. aldar. Ennfremur er dómkirkjan þekkt fyrir Transparente eða Gegnsæja altarið, það er skærlita altaristöflu útskorna, sem sýnir síðustu kvöldmáltíðina. Taflan er í kúrríkskum skreytistíl. Gluggum var komið fyrir ofan við töfluna til að ljós og skuggar gætu leikið við útskurðinn.

Norðan við dómkirkjuna er mikill fjöldi góðra matstaða, m.a. Adolfo.

San Juan de los Reyes, Toledo

San Juan de los Reyes, Toledo

Áfram höldum við til vesturs, eftir götunni Ángel Santo Tomé til klaustursins San Juan de los Reyes. Á leiðinni er kirkjan Santo Tomé. Við hana er márískur turn frá 14. öld. Inni í kirkjunni er frægt málverk eftir El Greco. Hann hét réttu nafni Domenico Teotocopulos, fæddur á Krít, en bjó lengst af í Toledo, í lok 16. aldar og upphafi hinnar 17.

Rétt aftan við kirkjuna er hús og safn Grecos, Casa y Museo del Greco. Verk hans eru víðar í bænum, til dæmis í safninu Santa Cruz, sem er rétt norðan við Alcázar.

Rétt hjá safninu er önnur af tveimur sínagógum borgarinnar, Sinagoga Del Tránsito, frá 14. öld. Að utan er hún ekki merkileg að sjá, en að innan eru márískar skreytingar. Hin sínagógan, Santa María la Blanca, er á svipuðum slóðum.

San Juan de los Reyes

Næstum vestur við Cambrón-hlið er klaustrið San Juan de los Reyes. Það var reist í lok 15. aldar á vegum Ferdinands og Ísabellu í gotneskum stíl. Klaustrið er glæsilegt að utanverðu og skrautlegt að innanverðu.

Hér við Cambrón-hliðið er veitingahúsið Chirón.

Margt fleira er merkilegt að skoða í Toledo. Þar á meðal er aðaltorg borgarinnar, Plaza del Zocodover, norðan við Alcázar og rétt hjá Santa Cruz-safninu, þar sem meðal annars eru málverk eftir El Greco. Það er að minnsta kosti dagsverk að rölta um borgina fram og aftur til að kynnast henni.

Þá er bara að fara til Madrid og ljúka þessari ökuferð.

13. Toledo

Borgarrölt
Toledo

Toledo, dómkirkjan efst fyrir miðju, kastalinn efst til hægri

Toledo

Toledo er ein elzta borg Spánar, sögufrægur 60 þúsund manna miðaldabær, sem stendur á graníthöfða við fljótið Tajo, girtur múr á þá hlið, sem snýr frá ánni. Þetta er einn elzti bær Spánar, lagður þröngum og undnum göngusundum. Toledo var höfuðborg Vestgota og lengst af helzta borg Kastilíu, unz Madrid var gerð að höfuðborg um miðja 16. öld. Hún er enn höfuðborg kaþólsku kirkjunnar, því að æðsti kardínáli landsins hefur þar vist.

Allur gamli bærinn í Toledo er skemmtilegt göngusvæði, allt frá borgarkastalanum Alcázar í austurendanum til klaustursins San Juan de los Reyes í vesturendanum.

Alcázar stendur þar, sem borgarstæðið er hæst, og gnæfir yfir önnur hús í bænum. Í núverandi útliti er kastalinn að mestu frá 16. öld, en hefur síðan brunnið þrisvar og var nær eyðilagður í borgarastyrjöldinni 1936, en hefur verið endurnýjaður í hinni gömlu mynd.

Næstu skref