0143 Sjónvarp 2

0143

Textastíll
Sjónvarp II

Skrifaður texti er oft erfiðari en lesinn texti, af því að tóninn vantar. Finndu muninn: GETUR þú gert eitthvað; getur ÞÚ gert eitthvað; getur þú gert EITTHVAÐ?

Allar málsgreinar í ljósvakanum eiga að segja skýrt, hver sé að tala. Beinar og óbeinar tilvitnanir. Aðeins það, sem þú hefur sjálfur séð, er án beinnar eða óbeinnar tilvitnunar. Það gerir textann trúverðugan og eykur traustið á miðlinum.

Erfiðara er að ná góðu rennsli í texta, þegar tilvitnanir eru notaðar. En það er ekki ómögulegt. Það er ekki nóg, að rennslið sé gott og sagan góð, hún þarf að vera trúverðug. Frétt er sönn, hún er ekki getgáta, hún er ekki skoðun.

Þú tekur ekki orð heimildarmanns og gerir að þínum. Þú segir, að þessi ákveðni heimildarmaður hafi sagt það. Þú veist það ekki sjálfur, það er málið. Þú staðfestir orð hans með því að ná í aðra, óháða heimildarmenn, sem segja það sama.

Þetta er sérstaklega mikilvægt í glæpa- og dómsmálum. Ef lögregla segir frá glæp, er nauðsynlegt að bera hana fyrir fullyrðingum. Ef hún segist hafa gómað þrjótinn, segir þú ekki, að hún hafi gert það, heldur hafi hún sagst hafa gert það.

Oft er nauðsynlegt að nota orðið “meintur”, þótt það sé stirt lýsingarorð. Ef einhver er talinn hafa verið myrtur, er munur á “morð” og “meint morð”. Ef einhver er ákærður fyrir það, er munur á “morðingi” og “meintur morðingi”.

Þegar orðið “meintur” er notað, er mikilvægt, að fram komi, hver meini það. Er það lögreglan, er það dómarinn, er það blaðamaðurinn, er það amma blaðamannsins? Þetta er hættulegt orð eins og “sagður”. Hver segir það?

Oft geta önnur orð komið í stað “meintur”. Góð orð eru “kærður”, “ákærður”, “handtekinn í tengslum við”, “sakaður af Jóni”. Mundu, að kærður er ekki sama og ákærður. Það fyrra á við hvaða kæranda sem er, en það síðara við opinbera ákæru.

Þú verður líka að gæta heiðarleika gagnvart öðrum miðlum. Ef þú tekur fréttaefni úr öðrum miðli, þarftu að segja: “Að sögn Morgunblaðsins í morgun.” “Samkvæmt hádegisfréttum Ríkisútvarpsins.” “Í nýjasta tölublaði Hér og Nú segir, að …”

Heimildamenn vilja stundum ekki, að nafn þeirra komi fram:
1) Þeir gætu lent í vandræðum, ef frá þeim væri sagt.
2) Þeir vilja tjá sig án þess að bera ábyrgð.
3) Þeir vilja hafa áhrif án þess að aðrir viti það.

Fyrsta ástæðan er besta ástæðan og raunar sú eina, sem hægt er að viðurkenna. Tvær síðari ástæðurnar fela í sér tilraun til að misnota fjölmiðla. En því miður eru þær algengastar. Samanber ummæli David Wise:

“Nafnlaus leki er sterkt vopn, sem stjórnvöld nota til að villa fólk; til að skrúfa fyrir andstæðing; til að kanna stuðning við mál, sem er í skoðun; til að senda öðrum landsfeðrum skilaboð; til að afla stuðnings við mann/mál; til að neita óþægilegri sögu; stýra fréttum.”

Í Washington er daglegt brauð, að embættismenn og aðstoðarmenn tali við blaðamenn og segi álit sitt með því skilyrði, að þeir séu ekki hafðir fyrir því, heldur kallaðir dulnefni: “Hátt settur embættismaður í utanríkisráðuneytinu sagði …”

Mikilvægt er að fara varlega með sögur af þessu tagi og ekki viðurkenna nafnleynd nema í ítrustu neyð. Mikilvægt er, að notendur viti, hver sé heimild að hverju áliti og hvaða burði hann hafi til þess að hafa slíka skoðun.

Mundu líka að bera aðila fyrir skoðanakönnun. Ekki segja, að flokkur hafi 51% fylgi, heldur, að það komi fram í könnun nafngreindrar stofnunar fyrir aðra nafngreinda stofnun. Segðu einnig, hvert sé úrtakið og hver sé skekkjan.

Best er að byrja á heimildarmanni: “Lögreglan segir …” “Borgarstjórinn segir … Eða hafa hann í miðjum klíðum: “Enn logar í rústunum og lögreglan segir, að …” Það er gamall prentmiðlastíll að segja: “… segir lögreglan.”

Litur í frásögn er það, sem gerir hana minnisstæða. Sjáum þá, sem eru hrókar alls fagnaðar, sem segja sögur af snilld, fá okkur til að hlæja, ögra okkur og fá okkur jafnvel til að gráta. Þeir kunna að nota móðurmálið, eru litríkir.

Litur í texta ljósvakans á að vera eðlilegur, engar klisjur eða ýkjur. Litur í texta fæst ekki endilega með litríkum orðum. Fólkið í sögunni og orð þess eru litrík. Ljósvakatexti á að endurspegla tilfinningar þess í hljóð- og myndbitum.

Hljóð- og myndbitar af fólki í fréttum færa okkur gamansemi, samúð og aðrar tilfinningar. Sama á að gerast í textanum, hann á að búa til sögu eins og listamaður býr til málverk. Smáatriðin skipta máli í þessum texta.

Sjónvarp I:
Talaður texti hefur fleiri víddir: Finndu muninn: GETUR þú gert eitthvað; getur ÞÚ gert eitthvað; getur þú gert EITTHVAÐ?