0131 Litur-Örsögur 2

0131

Textastíll
Örsögur og litur II

Tilvitnun er mikilvæg yfirlýsing eða túlkun, sem notuð er til að gera söguna trúverðugri, af því að þar talar maður, sem er sérfróður vegna reynslu eða þjálfunar.

Tilvitnun er mikilvæg fyrir lýsingu hennar á tilfinningum viðmælandans. Þú getur endursagt rök hans og útskýringar, en markmið tilvitnunarinnar er að sýna hans innri mann.

Tilvitnun getur sýnt hvassyrði eða skörulegan málflutning viðmælandans. Pólitíkus segir um annan pólitíkus, að hann eigi að skammast sín fyrir að fara vitlaust með tölur um stimpilgjöld og tala út í eitt í ræðustóli.

Tilvitnun getur aukið fjölbreytni í textanum, til dæmis rekið endahnút á atriði, sem þú vilt leggja áherslu á, einkum ef tilvitnunin er mikilvæg og færir lesandanum síðasta atriðið, sem vantar í þægilega framsetningu greinarinnar.

Blaðamaður með þjálfun í að skoða smáatriði, fyllir minnisbókina af atriðum, sem hugsanlega mætti nota í grein. Þegar hann fer að skrifa, tímir hann ekki að sleppa þeim. Hann freistast til að nota þau, af því að hann náði þeim.

Það er ekki litur að segja lögmann hafa verið í gráum jakkafötum. Eða að segja ungfrú Ísland hafa rætt við blaðamenn með tæra tómatsúpu á borðum. Settu það hins vegar í fréttina, ef flakaður skröltormur var á borðum.

Virkar: “Hópurinn hafði byrjað á Henrico Country leiðinni fyrir mánuði og var búinn að vera að í mesta sumarhitanum. Þetta var hins vegar blár og svalur dagur. Fangarnir í bláum vinnufötum og gulum hjálmum höfðu tíma til að kvarta við blaðamanninn um …”

“Með milljónaskuldir dollara á bakinu og vina- og ættingjalaus var Elkins að undirbúa endurkomuna. Hann sat við eldhúsborð með óhreinum diskum og pítsu-skorpu. Símastúlkan á mótelinu varð að hringja fyrir hann, það var eina samband hans við …”

“Í gullbrúnu húsi á horni Dopey Drive og Mickey Mouse breiðgötu hafa tvö herbergi verið frosin í tíma í fimm ár að skipun forstjóranna. Þar bjó Walt Disney til drauma sína. Hér hefur engu verið breytt síðan stofnandinn dó úr lungnakrabba árið 1966.”(WSJ

“Reykjavík er sá staður á landinu, þar sem auðveldast er að verða fullur og haldast fullur. Alls staðar eru vínveitingar. Ofan á allt þetta bætist, að Reykjavík hefur sérstakan garð fyrir róna. Sá garður heitir Arnarhóll.”

“Napizaro, Mexikó – Furðanlega skilvirk viðskiptaáætlun er í þessu 1200 manna þorpi. En ríkisstjórn Bandaríkjanna veit ekkert um hana. Henni mundi ekki geðjast að áætluninni, ef hún vissi um hana.” (WSJ)

“Wright, Wyoming – Þetta er engin París sléttunnar. Hvergi sést gangstéttarkaffihús eða læknastofa, leikhús, bílaverkstæði eða pítsustaður. Og fyrir utan 1600 manna þorpið er endalaus sléttan, lamin þrálátum vindi.” (WSJ)

“Mike er 28 ára verðbréfasali hjá góðu fyrirtæki í Wall Street. Hann hefur góðar tekjur, hefur gaman af starfinu og nýtur fjölskyldu sinnar. Eins og margir starfsbræðranna notar Mike kókaín.” (WSJ)

“Morgunsólin þvær Fourth og Vance götur, skvettist á þreytta framhlið 4-Way Bar og knattstofunnar við hliðina. Jafnvel á stigann upp í hóruhúsið á efri hæðinni. Að ofan heyrist söngur, sem nær til mjólkurpóstsins og mannanna undir trénu. (WSJ)

“Á nákvæman og rökréttan hátt sýndi verkfræðingurinn, hvernig grunnvatnið tengdist fljótinu. Hvernig dælustöðvar mundu draga úr fljótinu og gera Nýju-Mexikó ókleift að verða við skyldum sínum gagnvart Texas.” (WSJ)

“Hafnarfjörð vantar fólk á mörgum sviðum. Lögreglumenn hafa tekið upp störf við eftirlit í álverinu. Og kennarar fá meira kaup við að hræra í álkötlum. Jón Pétursson þarf ekki að taka með sér nesti, því að nóg er boðið í mötuneytinu. Hann á fyrir bíl …”

Kris Kristofferson: “Well I woke up Sunday morning/with no way to hold my head, that didn’t hurt/
And the beer I had for breakfast/
wasn’t bad so I had one more for dessert./ Then I fumbled through my closet for my clothes./And found my cleanest dirty shirt .”

Að vera leiðinlegur
jafngildir ekki því að vera góður.
Örsögur og litur:
Settu pensilinn í smáatriðin

Örsögur og litur
Blaðamenn geta ekki fengið lit í söguna með því að nota orðtök og klisjur. Þeir verða að nota sértæk smáatriði, til dæmis örsögur.