City Palace
![Udaipur City Palace 5](http://www.jonas.is/wp-content/uploads/2015/12/Udaipur-City-Palace-5.jpg)
Skreyting í City Palace
Mesta mannvirki borgarinnar er City Palace, stærsta höll í Rajasthan. Hún er röð halla á vatnsbakkanum, byggðar á ýmsum tímum í 400 ár, allt frá 1559, með glæsilegu útsýni yfir stöðuvatnið. Meginhluti hallanna er núna fornminjasafn.