Eiga heima í Framsókn

Punktar

Samfylkingin getur ekki boðið upp á rasista í fjórða sæti framboðslistans í Reykjavík. Getur ekki skýlt sér bakvið hegðun prests rétttrúnaðarkirkjunnar. Kristín Soffía Jónsdóttir réðist á söfnuðinn í heild. „Skítasöfnuður sem ætti að fokka sér“, sagði hún og á að segja sig frá framboði. Þótt Framsókn telji sig geta prófað sig áfram í rasisma, getur Samfylkingin það ekki. Framsókn fetar út í nýfasisma og leggur óhjákvæmilega öngla sína fyrir botnfallið í þjóðfélaginu. Einhvers staðar verða vondir að vera og þeir eiga hikstalaust heima í þjóðrembdri Framsókn. Við þurfum að hafa sæmilega reglu á hlutunum.