Ýmissa kosta er völ

Punktar

Mér finnst Lilja Mósesdóttir gjarna mega fara á næsta þing. Talar minna en áður um, að allir séu vondir við sig. Hefði viljað sjá þarna einnig Sigurð veðurfræðing. Guðmundur Steingrímsson á endurkomurétt, því hann neitaði að taka þátt í skrípalátum Framsóknar og Sjálfstæðis í fyrravetur. Guðmundur Franklín er hress og mætti fara á þing, en sumir fylgismenn hans eru lakari. Mér finnst upplagt, að Birgitta Jónsdóttir fari á þing fyrir sjóræningja. Og vona, að samkrull Hreyfingarinnar og stjórnlagafólks skili sér í sem flestum þingmönnum. Mestan áhuga hef ég á mun fleiri andlitum af stjórnlagaþinginu.