Vísindalegar samanburðarrannsóknir sýna, að Wikipedia er jafn áreiðanleg og Britannica. Alfræðiritið á vefnum hefur slegið í gegn. Er orðið uppflettirit okkar margra, sem þurfum hratt að afla staðreynda. Því missi ég nánast út hjartaslag, þegar Wikipedia segir beint, að Björgólfur Thor Björgólfsson sé peningaþvottamaður rússnesku mafíunnar. Þeir feðgar hafi fjármagnað veldi sitt með fé frá rússnesku mafíunni. Í grein Wikipedia er fjallað um bruna og morð á samkeppnisaðilum bjórverksmiðju feðganna í Sankti Pétursborg. Það sem lengi var rætt undir rós hér á landi, er nú orðinn sannleikur í alfræðiriti.
