Vinur minn Mark

Punktar

Lengi hefur mig vantað Stóra bróður til að halda í hendina á mér. Loksins hefur Mark Zuckerberg tekið við þessu nauðsynlega hlutverki. Fésbók hans hefur útvegað mér aðild að ýmsum félögum, sem ég vissi ekki, að væru til. Hann bendir mér sífellt á nýja vini og ræður mér heilt um að vingast við aðra. Hann hefur líka flokkað vini mína í betri vini og beztu vini. Hefur ákveðið, að allir eftirlaunamenn séu mínir beztu vinir. Nú hefur Mark líka byrjað að læka fólk og fyrirtæki fyrir mína hönd. Slær birtu á einmana líf mitt. Vona, að Mark útvegi mér nú þægilega innivinnu sem pólitískt kvígildi.