Atli Gíslason þingmaður telur þjóðaröryggismál að skera bændur úr snöru offjárfestingar. Eins og stóru bófana í þjóðfélaginu, ekki eins og almenning. Atli vill afskrifa lán bænda, svo að vargurinn á mölinni fái mjólk. Þetta er áratuga gamalt bull úr Framsókn. Ekki er Jón Bjarnason ráðherra hótinu skárri. Kvartar yfir auglýsingu Símans, þar sem karlar í fjallakofa hafna þorramat, panta í staðinn pítsu, þjóðarrétt Íslendinga. Telur þetta móðgun við landbúnaðinn. Atli og Jón eru meira afturhald en venjulegir framsóknarmenn. Í flokki vinstri grænna veður Framsókn uppi.
