Þegar fólk tekur þátt í söngvakeppni án þess að geta sungið, fara menn að leita að orsökunum. Hvers vegna telja margir, að þeir geti komizt langt í lífinu án þess að geta neitt? Guardian í morgun segir frá umræðu brezkra skólamanna. Þeir segja, að skólakerfið leggi áherzlu á mjúk fög. Einkunnum og skírteinum sé dreift á alla í skólum fátækrahverfa. Börn yfirstéttarinnar fari hins vegar í einkaskóla, þar sem lögð sé áherzla á erfiðar greinar. Þeir segja, að mjúku skólarnir telji börnum trú um, að lífið sé léttara en það er. Þau séu ginnt til að halda, að allir geti orðið Britney Spears.
