Vikapiltur þrengir að náhirð

Punktar

Þegar “vikapiltur Steingríms”, að mati Davíðs og Mogga, varð alvöru formaður Flokksins, þrengist um Davíð og náhirðina. Hvað verður um Davíð og Björn, Styrmi og Hannes Hólmstein, AMX og Moggann? Skrímsladeildin á bágt þessa dagana. Hún tapaði IceSave og næst blasir við Evrópusambandið. Er ekki rétt, að náhirð Davíðs taki saman höndum við órólegu deildina hjá vinstri grænum? Fordæmið er komið í samtökum, sem Ásmundur Einar Daðason veitir forstöðu. Þar fallast hægri og vinstri taparar í faðma í hatri á Evrópu. Þar er sterk samstaða þeirra, sem vilja verja íslenzkt gerræði fyrir evrópsku skrifræði.