Við erum orðin siðuð

Punktar

Góðir hlutir gerast í bland við annað á fundum ríkisstjórnarinnar. Hún hefur samþykkt tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra um séríslenzka loftslagsákvæðið. Ekki verður sótzt eftir slíku ákvæði á næsta samningafundi um loftslagsmál. Þetta er í fyrsta skipti, sem Ísland færir sig úr hópi loftslagssóða yfir í hóp siðvæddra ríkja. Siðuð ríki heimsins tilkynna nú hvert á fætur öðru ný og öflugri markmið í hreinsun loftslags. Noregur, Sviss, Ástralía og Evrópusambandið hafa tilkynnt markmið um 30% minnkun á útblæstri hættulegra lofttegunda. Ísland hefur núna tilkynnt 25% minnkun.