Veruleikafirrt Alþýðusamband

Punktar

Alþýðusambandsdeild Samtaka atvinnulífsins gengur berserksgang gegn stjórn landsins. Reynir að velta henni úr sessi. Svo að eindregin frjálshyggja geti komizt aftur til valda. Mesta áherzlu leggur formaður hennar á álbræðslur. Líklega á hann við atvinnusveiflur, sem rísa og hníga vegna framkvæmda við stóriðju. Varla er það reksturinn. Veitir minnsta vinnu allra atvinnuvega. Einnig leggur Gylfi Arnbjörnsson mikla áherzlu á, að skattar verði ekki hækkaðir. Hann heldur, að þúsund milljarða hrun ríkissjóðs geti þýtt annað en hærri skatta. Eins fjarri íslenzkum veruleika og aðrir frjálshyggjumenn.