Vel kemur á vondan

Punktar

Vel kemur á vondan, að Vestmannaeyingar væli yfir sölu aflaheimilda Þyrlu-Manga austur á Firði. Bæjarstjórinn og aðrir páfar bæjarins hafa ekki haft svo lítið fyrir að gelta á alla, sem amast við þjófnaði kvótagreifanna. Nú finna Eyjapeyjar á eigin skinni, hvernig er að vera háðir greifum, er kaupa og selja þýfi án tillits til atvinnumissis í sveitarfélögum. Jólasveinar sveitarfélagsins hefðu betur átt að hugsa til þess, er þeir létu kúga sig til að gelta að fólki eftir skipunum frá Þyrlu-Manga og öðrum kvótagreifum. Og Vestfirðingar ættu líka að vita betur eftir kvótaránsferðir Samherja.