Stjórnlagaráðsfólk, varið ykkur á stærðfræðingnum. Þorkell Helgason stýrði breytingum á reiknikerfi kosninga um áratugi. Ber ábyrgð á flakkaranum. Fylgikvilli breytinga hans er, að fólk hættir að skilja. Kjósendur missa áhugann. Munið eftir kosningunum til stjórnlagaþings. Reikniverkið þar var eftir Þorkel. Hann er hættulegur. Hafnið göldrum á borð við “kjördæmavarið landskjör”. Orðalagið segir mér, að Þorkell sé að baki. Með sjónhverfingum fram og aftur er reynt að telja ykkur trú um, að allir fái sitt bingó. Þjóðfundurinn bað hins vegar um einfalt kerfi: “Allt landið eitt kjördæmi”.