Vantaldir siðblindingjar

Punktar

Nanna Briem vanmetur fjölda íslenzkra siðblindingja, fer eftir bandarískum stöðlum. Hér eru þeir ekki 3000, heldur margfalt fleiri. Hafa í rúman áratug tugþúsundum saman kosið siðblindingja á þing. Ætla samkvæmt könnunum enn að kjósa hrunverja. Við höfum í rúman áratug þolað siðfræði Hannesar Hólmsteins um “að græða á daginn og grilla á kvöldin”. Höfum jafn lengi þolað siðfræði Péturs Blöndal um, að fé utan græðginnar sé “fé án hirðis”. Höfum búið við faraldur af siðblindu. Við endurreisn banka og stofnun Bankasýslu ríkisins voru enn ráðnir siðblindingjar í æðstu stöður. Siðblindan er enn á fullu.