Í þessari viku samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samhljóða, að forsetakosningarnar í Afganistan hefðu verið trúverðugar og traustar, “credible and sound”. Ísland er meðal ríkjanna, sem greiddu ruglinu atkvæði. Sameinuðu þjóðirnar glötuðu rest af trausti, þegar í ljós kom, að þau reyndu að skrúfa fyrir gagnrýni á kosningarnar. Sendiherra samtakanna í Afganistan, Norðmaðurinn Kaj Eide, setti kíkinn fyrir blinda augað. Rak síðan Peter Galbraith, sem kjaftaði frá heimsins mesta kosningasvindli aldarinnar. Gróin hræsni og vandræðagangur og lygi Sameinuðu þjóðanna hafa gengið út í öfgar.
