Upp með bananalýðveldið

Punktar

Sigurjón M. Egilsson segir, að bananar hafi verið vinsæll matur á sjó. Borða mátti þá standandi úti á dekki án þess að taka af sér gúmmívettlingana. Ráð er að koma fyrir bananaklösum hér og þar í sal Alþingis. Þá ætti Margrét ekki að verða svöng og ekki hinir heldur. Þeir, sem komast í sjötíu ræður í einni umræðu um eitt mál ættu líka að mega hafa kopp í þingsal. Með koppi undir og bananaklasa yfir ræðustól ættu Gunnari Braga Sveinssyni og Birgi Ármannssyni að vera allir vegi færir. Markmiðið er, að brennuvargarnir frá hruninu geti stanzlaust hindrað störf brunaliðsins. Upp með bananalýðveldið.