Unga fólkið tapaði

Punktar

Tapari kosninganna var unga fólkið, sem kaus ekki, gaf lýðræðið frá sér og framkallaði sigur afturkallanna. Taparinn var líka getulaus þjóð, sem hvorki getur talið atkvæði skammlaust né haft skammlausa kosningavöku í sjónvarpi. Utan Reykjavíkur var sigurvegarinn LÍÚ, grátkór kvótagreifanna, sem heldur sjávarplássum landsins í heljargreipum blekkinga. Sigurvegari yfir landið í heild er Framsókn. Hún heldur ótrauðri siglingu inn í draumaheima rasista í þjóðrembu, útlendingahatri og útlandahatri. Afturkallar eru menn dagsins og SDG er okkar sæli Mussolini. Vigdís Hauks og Sveinbjörg eru gribbur dagsins, Ísland fyrir Íslendinga!