Undralandið Ísland

Punktar

Skondið, að kjósendur skuli velja sér til forustu silfurskeiðunga, sem fela auð sinn á aflandseyjum. Sem nota ríkisvaldið til að færa gæludýrum sínum peninga á silfurfati. Sem lifa á fjölþjóðlegri mynt og segja kjósendum á sama tíma, að krónan sé málið. Sem í hverju skrefi hossa auðgreifum á kostnað almennings. Sem eru svo spilltir, að leitun er að öðru eins hjá vestrænum þjóðum. Sem vinna kosningar á firrtum yfirlýsingum um risavaxnar gjafir handa öllum. Hefur allt komið skýrt í ljós á þremur stjórnarárum. Samt er enn þriðjungur þjóðarinnar fastur í fylgispekt við yfirbófana og bófaflokka þeirra. Sannkallað Undraland.