Umskiptingurinn

Punktar

Nýtingin á flokknum er tæpast helmingur af því sem var á velmegtarárunum. Þó slæðast inn nýir kúnnar. Út sjást að vísu ganga Ólafur Stephensen, Benedikt Jóhannesson, Þorsteinn Pálsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, ýmis samtök atvinnulífsins. En inn eru að koma Hjörleifur Guttormsson, Ragnar Arnalds og Ögmundur Jónasson. Í anddyrinu eru stór málverk af Ólafi Ragnari Grímssyni og Vladimír Pútín, Xi Jinping, Vigdísi Hauks og Hádegismóra. Vestur-Evrópa er óvinurinn, Kína er sæluríkið. Nýja stefnan er frá þjóðernisfasistum, víkkaður ríkis-pilsfaldur fyrir gæludýrin, blátt bann við frjálsum markaði.