Týndir tóbaksmilljarðar

Greinar

Athuganir benda til, að einn fjórði hluti af öllu tóbaki, sem Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins flytur til landsins, komi ekki fram í söluskýrslum stofnunarinnar. Þessi mismunur er metinn á tæplega 1500 tonn síðustu ellefu árin og nemur í söluverði nokkrum milljörðum króna.

Halldór Halldórsson blaðamaður upplýsti stöðu þessa undarlega máls í kjallaragrein í Dagblaðinu á mánudaginn. Byggir hann á athugunum, sem gerðar voru á vegum embættis landlæknis um sölu og neyzlu tóbaks í landinu. Skýrslugerðarmaður embættisins gerði mánuðum saman árangurslausar tilraunir til að fá skýringar á grófum mun á innflutnings- og söluskýrslum tóbaks, en tókst ekki.

Í framhaldi af þessu skrifaði landlæknir hinn 3. júní í fyrra bréf til Jóns Kjartanssonar, forstjóra Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins, þar sem segir m.a.: “Okkur skortir skýringar á hinum mikla mun, sem er á áætluðum innflutningi og áætlaðri sölu á tóbaki, sem fram kemur eftir árið 1964. Til þess að unnt sé að birta skýringu við línuritið værum við þakklátir fyrir svar í byrjun næstu viku.”

Jón Kjartansson hafði ekki enn svarað þessu bréfi um síðustu helgi, svo að landlæknir hefur þegar fengið að bíða í átta mánuði. Virðist tóbaksforstjórinn ekki hafa minnsta áhuga á, að bókhald stofnunar hans sé með þeim hætti, að unnt sé að sjá nákvæmlega, hvort tóbak, sem hún flytur til landsins, komi til skila í eðlilega bókfærðri sölu úr stofnuninni.

Allt virðist gert til að flækja þetta mál og hindra, að hið sanna komi í ljós. Innflutningurinn er gefinn upp í tonnum, en salan í stykkjum. Þess vegna þarf að áætla þyngd ytri og innri umbúða til þess að fá sambærilegar tölur um hreyfingar tóbaks inn og út úr Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins.

Halldór Halldórsson blaðamaður vigtaði því sígarettur, sígarettupakka og karton á opinberri rannsóknastofnun til þess að fá innsýn í þennan frumskóg. Voru hlutföllin, sem hann fékk út, önnur en þau, sem áður hefur verið miðað við.

Niðurstaða Halldórs eftir athugun málsins er þessi: “Það er enginn í öllu ríkisapparatinu, sem hefur hugmynd um, hvort innflutnings- og söluskýrslur eru réttar. Það veit enginn, hvað er eðlilegt og hvað óeðlilegt í þessum efnum. Þess vegna hefði hverjum sem væri verið í lófa lagið að stinga undan þessi ellefu ár nokkrum tonnum árlega án þess að nokkur tæki eftir.”

Það dugir náttúrlega ekki, að opinberum forstjóra sé leyft að flækja svo bókhald stofnunar sinnar, að ógerlegt sé að finna, hver sé vörurýrnunin á hans vegum. Fjármálaráðherra ber nú, þegar athygli hefur verið vakin á þessu hneyksli, að láta hefja opinbera rannsókn á, hvort tæplega 1500 tonn og nokkrir milljarðar króna hafi glatazt í Áfengis- og tóbaksverzluninni eða ekki.

Ekki ætti að skipta neinu máli, hvort forstjóri stofnunarinnar er einn af máttarstólpum þjóðfélagsins eða ekki.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið