Tuddast áfram

Punktar

Davíðistar hófu fyrir helgi herferð gegn embættismönnum. Sem hafa bara verið að vinna vinnuna sína í máli Hönnu Birnu. Eftir langt hlé gengur þar skrímsli undir skrímslis hönd. Reyna að hræða kontórista til hlýðni og vara aðra við. Þetta gerðist snöggt. Björn Bjarnason fer fyrir liðinu. Þetta eru gamalkunn vinnubrögð hans og Davíðista flokksins. Stefnan er, að forustulið Flokksins sé hafið yfir lög og rétt; gagnrýni jafngildi drottinsvikum. Tuddarnir vilja sitt gerræði í friði fyrir vinnu- og siðareglum. Hanna Birna er ræktuð í Valhöll og tuddast áfram í lygum, leka og fölsun. Eins og Davíðistar vilja hafa það.