Traustið er hrunið

Punktar

Loksins hefur fjöldinn séð ljósið. Traust hans á Sigmundi Davíð forsætis er hrunið niður í 23% samkvæmt könnun MMR. Einnig er hrunið traustið á Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, niður í 27%. Traustið á Bjarna Benediktssyni minnkaði heldur minna, niður í 25%. Áður var lítið traust á Árna Páli Árnasyni og það er nú komið í 20%. Katrín Jakobsdóttir er eini formaðurinn, sem blaktir, með 46% traust. Hefur þar á ofan meira traust kjósenda Samfylkingarinnar en Árni Páll. Steingrímsson og Birgitta eru á miðju róli. Ljúft væri að sjá tölur um hrun Gunnars Braga og Sigurðar Inga, Ragnheiðar Elínar og Kristjáns Þórs.