Torskilið tungumál

Punktar

Ég skil aldrei nein rök, sem Birgir Ármannsson og Jón Gunnarsson flytja og tæpast neitt af því, sem Bjarni Benediktsson flytur. Skil aldrei neitt af því, sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir, hvað þá Vigdís Hauksdóttir og Frosti Sigurjónsson. Sama að segja um Ögmund Jónasson og Árna Pál Árnason. Ekki skil ég nein rök, sem Ólafur Ragnar Grímsson flytur. Ekkert af þessu fólki talar tungumál, sem ég skil. Sumt af því talar Newspeak, þar sem orðin þýða öfugt. Og sumt er bara sjálfvirk froða af slembisamtengdum hugtökum. Skrítið er að búa í landi, þar sem pólitíkin er orðuð á óræðu tungumáli.