Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa verðmetið tjón þjóðarinnar af völdum Sjálfstæðisflokksins. Árni Johnsen, Guðlaugur Þór Þórðarson og Unnur Brá Konráðsdóttir telja tjónið nema 11.000 milljörðum. Þau vilja krefjast þess, að Bretland, Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið borgi þetta tjón. Losi þannig Flokkinn undan ábyrgð á hruninu. Út um þúfur fór tilraun Flokksins til að gera Ísland að ríkasta landi heims með millifærslum ímyndaðra peninga og öðrum sjónhverfingum. Þremenningarnir kenna útlenzkum um að hafa hindrað gróðaparadís Flokksins. Hví fer Flokkurinn ekki sjálfur í mál við útlandið?