Tíu línur um árið 2010

Punktar

Árið 2010 tóku prívathagsmunir við af almannahagsmunum í hasar aðgerðasinna. Heimavarnarliðið sló skjaldborg um hús braskara, sem hafði gert allt á haus, sem hann kom nálægt. Hagsmunasamtök heimilanna gerðu að dýrlingi sínum mann, sem taldi henta sér að búa í fjögurhundruð fermetra húsnæði. Frumsýnd var bíómynd um hrunið eftir mann, sem taldi mannréttindi felast í að eiga fyrir ilmbaðstofu á World Class. Það, sem áður hét Búsáhaldabylting, snerist upp í andhverfu sína. Bankarnir voru endurreistir með sams konar bófum og áður. Þeir afhenda fyrirtækin afskrifuðum bófum. Og Jón Gnarr varð borgarstjóri.