Þungavigtarbarn í megrun

Punktar

Þungavigtarbarnið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er í árangurslausri megrun. Borðar eingöngu íslenzkar vörur. Öðrum þræði nýtist því megrunin til að efla ímynd Sigmundar sem þjóðrembu. Situr nú við saltket og ketsúpu, kartöflur og harðfisk með þverhandarþykku smjöri. Mér finnst þetta mataræði henta betur útivinnandi bændum en innandyra lýðskrumurum. En kúrinn er þekktur, heitir Dr. Atkins Diet Revolution, eftir lækni, sem dó úr megrun og offitu. Margir hafa vitnað um frábæra virkni þeirrar tegundar megrunar. En bráðholl er hún varla. Mæli með, að Sigmundur hafi góðan lækni með í ráðum í stríðinu við vigtina.