Aðild rasista að fésbókinni margfaldast. Þar birtast miðaldra konur og annað dagfarsprútt fólk. Dreifir myndskreyttum lygasögum um vonzku múslima, einkum gagnvart konum og börnum. Sögurnar blandast gjarnan kynórum og eru ekki úr hefðbundnum fjölmiðlum. Eru frá lygamiðlum, sem blanda saman gömlum myndum og nýjustu lygasögum. Nánast allt þetta hefur verið hrakið, en það truflar ekki dagfarsprúða fólkið. Ef ég amast við aðild þess að dreifingu þvættings, segir það: Múslimar eru samt vondir. Því miður verð ég að segja þessu dagfarsprúða fólki, að það er rasistar. Hræddir smælingjar, sem leita skjóls í valdinu.