Þora ekki út fyrir boxið

Punktar

Björn Rúriksson tók fyrir mörgum árum loftmynd af dularfullum hringjum í Nestúni á Seltjarnarnesi. Grafið var í einn eða tvo hringi og komizt að raun um, að þeir voru torfhlaðnir, voru ekki náttúrufyrirbæri. Fornleifafræðingar vilja ekki skoða hringina nánar. Vilja ekki trufla hefðbundna sýn á sögu mannvistar á Íslandi. Áratugum saman vildu þeir ekki heldur trufla trú sína á Ara fróða. Það þurfti eðlisfræðing til að sýna, að mannvist í landinu er eldri en landnám Ara. Aldrei hafa fornleifafræðingar vilja rýna í þúsund ára gamla reiðvegi. Eru utan hefðbundinnar hugsunar, sem er innilokuð í boxinu.