Þjóðaróvinum sparkað

Punktar

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn eru óvinir þjóðarinnar númer eitt og tvö. Óvinir þjóðarinnar leynast líka í stjórnarflokkunum, einkum í Samfylkingunni. Leita færis til að þjóna greifum landsins. Með því að finna tæknivillur til að tefja stjórnarskrá og þjóðareign á kvóta. Segja málin ekki fullrædd og að skoða þurfi athugasemdir betur. Munu fela sig að baki lagatækna og málaliða kvótagreifa í sjómannafélögum og sveitastjórnum. Kann að leiða til, að stjórnarskrá og þjóðareign á kvóta falli á tíma á þessu þingi. Þá þarf þjóðin að refsa fjórflokknum í vor. Sparka honum öllum.