Þetta eru bófar

Punktar

Hanna Birna laug að alþingi 27. jan. Sagði ekki vera til í ráðuneytinu skjal af því tagi, sem birtist í fjölmiðlum. Komið er í ljós, að það var samið af lögmanni ráðuneytisins að ósk ráðherrans. Svo bætti aðstoðarfólk ráðherrans lygum við skjalið og kom því til hliðhollra fjölmiðla. Þar með bættist spuni við lygi. Síðan hefur Hanna Birna verið með undanbrögð, kennt Rauða krossinum um málið, jafnvel falið sig bak við dóttur sína. Vinnubrögð hennar eru þekkt úr borgarstjórn. Hanna Birna og aðstoðarfólk hafa breytt lélegum ríkiskontór í þjónustustofnun gerræðis. Þau munu ekki segja af sér, því þetta eru bófar.