Þetta er engin Róm

Punktar

Rómverjar vissu, að skolpræsi eru fremsta undirstaða siðmenningar. Cloaca Maxima var svo vel byggt, að það nýtist enn í dag. Eldri menningarríki en Rómverjar byggðu líka tilveru sína á holræsum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir innleiddi siðmenningu á höfuðborgarsvæðinu með Cloaca Maxima Reykjavikensis. Að öðru leyti eru Íslendingar enn mestu sóðar. Fjölmennt þorp norður í landi flýtur í sorpgerlum, Akureyri. Þingvallavatn fyllist af sóðaskap Nesjavalla og á Klaustri er sorpbrennsla nákvæmlega í miðju þorpi. Íslendingar telja hreinlæti vera eitthvert ógeð frá kontóristum í hinu hataða Evrópusambandi.