Þetta er Davíðshrunið mikla

Punktar

Davíð Oddsson hefur engar vöflur á hlutunum. Var tilbúinn með hvítþvottinn, er hann var ráðinn ritstjóri. Hreinsun sagnfræðinnar hefst í fyrramálið. Þá kemur fyrsta grein Moggans um, hvernig allir aðrir en Davíð beri ábyrgð á hruninu. Þetta er eins og ég spáði um miðja vikuna. Markmið Davíðs með nýja starfinu er að endurrita söguna, hvítþvo sjálfan sig. Ég hef enga trú á, að það takist. Davíð ber meiri ábyrgð en nokkur annar maður á hremmingum okkar síðustu misserin. Þótt hann þvoi sér allan daginn alla daga og árum saman í Mogganum, nær hann aldrei af sér eigin skít. Þetta er Davíðshrunið mikla.