Þeir stífla götur

Punktar

Í svarta íbúðaklumpinum við Mýrargötu verða of fá bílastæði. Bíleigendur þar munu troða bílum í þröngar nágrannagötur, svo sem Nýlendugötu. Rýra þannig þægindi þeirra, sem þar búa fyrir. Nú er það beinlínis stefna. Með klumpinum eru kjósendur ofsóttir með því að stífla umferð á þröngum megingötum, í því tilfelli Mýrargötu. Með þéttingu bygðar eru kjósendur ofsóttir víðar um borg. Þétting byggðar á Melum og Högum mun til dæmis stífla umferð á Hringbraut vestan Melatorgs. Hinar mörgu hnífstungur eiga að hrekja fólk úr einkabílum upp í strætó eða upp á hjól. Með geðveikri kreddu eru kjósendur ofsóttir.