Tálsýn um evru á 125 krónur

Punktar

Sérfræðingar aðila vinnumarkaðarins eyða tíma í að gæla við tálsýn um fast krónugengi. Evran færi úr 177 krónum í 125 krónur. Hún er í rúmlega 200 krónum erlendis, sem er nær lagi. Ef stjórnvöld og Seðlabankinn hlusta á þessa fastgengis-vitleysu, erum við í vondum málum. Tæknilega gjaldþrota seðlabanki hefur ekki efni á að halda krónunni uppi handvirkt. Við getum ekki búið í upphafi 21. aldar við gjaldþrota hagkerfi Varsjárbandalagsins sáluga. Við léttum ekki byrðum af heimilum og fyrirtækjum með sjónhverfingu. En mál þetta allt sýnir, hversu vitlausir eru sérfræðingar vinnumarkaðarins.