Takk fyrir heimsóknina

Punktar

Mánudagurinn var ekki til mæðu. 5.336 manns heimsóttu www.jonas.is í gær, mismunandi einstaklingar. Heimsóknir þeirra voru 7.035 þann daginn. Í hverri viku koma á síðuna 8.865 mismunandi lesendur og koma þar 25.654 sinnum, að meðaltali þrisvar í viku hver. Í nóvember, sem ekki er liðinn, komu 21.268 mismunandi lesendur og komu þar 93.349 sinnum, fimm sinnum hver. Hef rúmlega fimmþúsund daglega lesendur, tæplega níuþúsund lesendur vikulega eða oftar og yfir tuttuguþúsund lesendur mánaðarlega eða oftar. Ætli ég slái ekki við leiðara í Mogga. Meiri lestur en leiðara mektardaga DV árin fyrir aldamót.