Sykur er hreint eitur

Punktar

Rannsóknablaðamaðurinn Gary Taubes birtir í dag langa grein í New York Times um vísindamanninn Robert Lustig. Sá segir, að sykur sé ekki bara skaðlegur heilsunni, heldur sé hann hreint eitur. Þá er hann bæði að tala um hvítan og brúnan sykur, svo og kornsíróp. Slík efni trufli starfsemi líkamans og valdi margvíslegum sjúkdómum. Ekki bara offitu og sykursýki, líka krabbameini og hjartasjúkdómum. Fræðimenn í Bandaríkjunum eru smám saman að fallast á þá skoðun, að sykur sé hreint eitur. Forðast beri hann eins og tóbakið. Ekki bætir úr skák, að margir magna með sér sykurfíkn og lenda í sætum vítahring.