Þegar bankarnir gengu berserksgang um Evrópu árið 2007, átti Seðlabankinn andvirði 163 milljarða króna í gjaldeyrisvarasjóði. Þá var bankavelta tíföld þjóðarframleiðsla. Nú þegar bankaveltan er hrunin, eru 322 milljarðar í gjaldeyrisvarasjóði. Fyrir utan evrur, sem hafa komið að láni. Tel þær ekki með, því að þær eru ekki varasjóður, bara skuld. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn vill, að varasjóðurinn fari upp í 1.000 milljarða, öll viðbótin að láni. Það er rugl. Öll utanríkisviðskipti okkar eru í erlendri mynt, lúta gengi þeirra mynta, ekki krónunnar. Aukinn varasjóður, fenginn að láni. er því óþarfur.
