Sumt er fokking vitað

Punktar

Veit um sumt, sem mun einkenna 2018. Hægfara fjölgun rafbíla og aukin þjónusta við þá. Flutningur á sous-vide tækjum úr íbúðum niður í geymslu, þar sem þau munu rykfalla við hlið fótanuddtækja. Veit meira um sumt, sem ekki mun einkenna 2018. Við höfum ríkisstjórn, sem ver gamla tíma, spillingu, svínarí og hjarðhegðun þingmanna. Katrín sér um það. Ekkert gert í heilsu og skólum. Ekkert gert til að efla stöðu Íslands í umheiminum. Ekkert gert til að íslenzka fylgi með í þróun tækni og tölva. Ekkert gert til að bæta stöðu landsins í tölulegum samanburði þjóða heims. Ekkert til að fá stjórnarskrá, jafnræði eða þá velferð lítilmagnans.