Sukk lífeyrissjóða

Punktar

Kastljós Ríkisútvarpsins hefur varpað ljósi á lífeyrissjóði. Ráðamenn þeirra eru yfirleitt gerspilltir og einnig verndaðir af leiðtogum verkalýðsfélaga og Alþýðusambandsins. Þeir gera ekkert, þótt kvartað sé yfir rugli sjóðanna. Þar fer heimska og sofandaháttar saman við dálæti á hegðun peningabófa. Oft hefur komið fram, að lífeyri landsmanna er sóað í þessum sjóðum. Brýnt er að gera sjóðina upptæka með lögum og fela reksturinn útlendingum, er ekki rekja ættir eða tengslanet til Íslands. Lífeyrissjóðirnir eru nefnilega bara angi af almennu sukki alls þorra þeirra, sem höndla án eftirlits með fé annarra.