Stéttaskipting 2012

Punktar

Þótt menntamenn hati Ólaf Ragnar, þá elska hann auðmenn og alþýða. Hún sér ekki gegnum hagnýta þjóðrembu, sem hefur einkennt allan hans feril. Telur hann hafa bjargað okkur í IceSave. Kannski dugar það honum til endurkjörs. Auðmenn elskuðu hann fyrir hrunið, þegar hann fór níu ferðir með einkaþotum þeirra. Þá var hann fundarstjóri og partístjarna þeirra og mærði víkingseðli þeirra. Nú vænta kvótagreifar þess, að hann hindri þjóðareign á kvóta. Nóg fé er þar til kosningabaráttu fyrir siðareglulausan. Gegn ofurvaldi auðmanna og alþýðu eiga menntamenn lítinn séns. Enda taldir lepja latté í hverfi 101.