Steingrímur fagnar lágu kaupi

Punktar

Sjávarútvegi og ferðaþjónustu vegnar vel, því að tekjurnar eru í gjaldeyri og útgjöldin í hruninni krónu. Krónan hentar stjórnvöldum þannig. Með henni er á einni nóttu hægt að rýra laun fólks, án þess að það fái rönd við reist. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á við þetta, þegar hann hrósar krónunni á kostnað evrunnar. Völt króna er ein af meginorsökum hrunsins. Evran er hins vegar traust mynt, sem ekki leyfir fjármálaráðherrum að lækka kaup. Auknar byrðar fólks kallar Steingrímur “samkeppnishæfni” krónunnar. Hann er farinn að tileinka sér orðaforðann úr frjálshyggju hrunverjanna.