Steingrímar skipti um lið

Punktar

Almennt hafnar fólk bankastefnu Steingrímanna. Vill ekki endurreisa banka í fyrri mynd. Vill ekki ofurlaun yfirmanna í bönkum. Vill ekki ofurbrask með ímyndaða peninga í skjóli leyndar. Vill ekki, að fjárglæframenn selji eignir fram og aftur með matador-peningum eða krónum. Vill ekki, að þeir geti síðan skipt gervi-peningunum út fyrir alvöru mynt, svo sem evrur og falið þær á Tortóla. Vill ekki, að peningarnir skríði til baka og kaupi upp verðlausar eignir fyrir slikk. Occupy-hreyfingin hafnar þessu öllu. Hún krefst þess, að Steingrímar heimsins skipti um lið. Fari að halda með fólki, en ekki bófum.