Sörli týnist ekki

Punktar

Að venju munu tíu til tólf þúsund manns heimsækja landsmót hesta og hestamanna, sem að þessu sinni er haldið á Hellu á Rangárvöllum. Þar af verða um þrjú þúsund útlendingar, sem hafa tekið þvílíku ástfóstri við íslenzka hestinn, að þeir koma langan veg hingað á landsmót á tveggja ára fresti. … Erfitt er að finna dæmi um annan eins mannfagnað á landinu, allra sízt á tveggja ára fresti. Mikilvægustu boltaleikir draga ekki að sér annan eins fjölda og enn síður annan eins fjölda erlendra manna, þótt landsleikir séu. Hesturinn einn getur reglubundið kallað saman þennan mikla fjölda fólks. …