Sömu gömlu andlitin

Punktar

Þessa dagana ákveður fjórflokkurinn andlit sitt í alþingiskosningum að vori. Ýmiss konar prófkjör og flokksval ákveða framboð flokkanna í Reykjavík og Kraganum. Í breytingakjördæmunum, þar sem nýjungar gætu gerzt. Hin þrjú kjördæmin velja sér hagsmunagæzlumenn að venju. Um þessa helgi sjáum við, hvort fjórflokkurinn býður aftur sömu andlitin. Síðasta helgi benti til slíks hjá Samfylkingunni og þessi helgi getur bent til hins sama hjá Vinstri grænum og Sjálfstæðisflokknum. Tel ekki, að þessir flokkar muni frekar en Framsókn höfða til þess þriðjungs þjóðarinnar, sem liggur á lausu í pólitík.