Sögufrægur pottur Valhallar

Punktar

Eldhrímnir er potturinn, sem kokkurinn Andhrímnir notar daglega í Valhöll til að elda sjávar-villisvínið Sæhrímni. Vel er við hæfi, að veitingahús heiti í höfuðið á þessum sögufræga potti Ásatrúarmanna. Nýlega birti ég rýni um staðinn, með rétt dagsins á 1.200 krónur í glerhúsi borgarskrifstofanna að Borgartúni 14. Mörg mathús í miðbænum bjóða rétt dagsins á þessu verði í hádeginu, en fá á kvöldin. Eldhrímnir er því girnilegur kreppustaður á kvöldin. Býður hefðbundna rétti með persnesku ívafi, er samt of varfærinn á kryddið. Linsubaunir og rúsínur lífguðu upp á hrísgrjón með svínateningum.