Soffía frænka segir Iss

Punktar

Varla sætir fréttum, að kvarnist úr foringjadrifnum valdaflokki. Steingrímur J. Sigfússon varð frálshyggjugaur að hætti Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Lilja Mósesdóttir og Atli Gíslason flúðu foringjaræðið. Lilja á hluta af sökinni. Sannfærð um eigin hagstefnu, þolir ekki frávik, getur ekki selt flokksmönnum hana. Nema Atla; Ásmundur varð eftir með Jóni Bjarnasyni. Lilja á fjölmenna hirð aðdáenda á fésbók. Atli vekur minni athygli, oft utan þings. Klúðraði starfi nefndar, sem fór yfir sannleiksskýrsluna. Var þar alltaf að búa til samstarf, sem aldrei var í kortunum. Hver flokkur át fyrir rest upp úr sínum poka.