Slátrum fjórflokknum

Punktar

Ég vil sjá fleira fólk úr Stjórnlagaráði í framboð. Fólk, sem kann að vinna og starfa saman að lausnum, ekki að framleiðslu vandræða. Feginn, að Gísli Tryggvason og Lýður Árnason fara í framboð fyrir Dögun. Vil líka sjá Þorvald Gylfason, Þórhildi Þorleifs, Ómar Ragnarsson, Illuga Jökulsson og aðra, sem hafa fylgt eftir tillögum ráðsins. Hvort sem þeir fara fram hjá Dögun eða öðrum nýflokkum. Götustrákum gömlu flokkanna á að fleygja á haugana og fá nýtt fólk til valda. Óska öllum nýflokkum góðs gengis og bezt gengis þeim, sem fá flesta úr stjórnlagaráði til liðs við sig. Slátrum fjórflokknum núna.