Slapp fyrir horn með 8437 atkvæði

Punktar

Landskjörstjórn hefur reiknað atkvæði til stjórnlagaþings eftir hefðbundnu reglunum, sem notaðar eru í prófkjörum. Val fulltrúa hefði orðið annað en eftir nýju reglunum. Út hefðu fallið Arnfríður Guðmundsdóttir, Ástrós Gunnlaugsdóttir, Pawel Bartosek, Pétur Gunnlaugsson og Dögg Harðardóttir. Inn hefðu komið Þorgeir Tryggvason, ég, Jón Ólafsson, Birna Þórðardóttir og Sigurður G. Tómasson. Sjálfur fékk ég atkvæði á 8437 seðlum, sem þýðir 19da sætið. Það er harla gott. En leikreglur eru leikreglur og þær gilda. Feginn er ég að hafa fengið þetta góða traust, en sleppa við að þurfa að þjóna.